September 3, 2010

Protected: Landsleikur í fótbolta

This post is password protected. To view it please enter your password below:


Protected: Kverkfjöll & íshellirinn 2010

This post is password protected. To view it please enter your password below:


September 2, 2010

Þreytandi …

… leyniorð verður enn og aftur sett á Kotbúarsíðuna inna skamms … ég er apparently komin (aftur) með stalker-bjána og því finnst mér ekkert sniðugt að hafa síðuna ólæsta lengur. *dæs* eins og þetta var nú þægilegt og kósý, ha? Ekkert að væflast með neitt vesenis leyniorð … lífið ljúft og gott … en jæja. Það þarf alltaf einhver að eyðileggja fyrir öllum hinum.

Ég hugsa að ég muni kannski ekki læsa allri síðunni, bara persónulegum færslum sem og myndafærslum.

Þið fastagestirnir sem ég VEIT að lesið bloggið þurfið ekkert að bera ykkur eftir leyniorðinu, ég mun senda ykkur það. En þið hin sem ég veit EKKI eða er ekki viss um að þið lesið – endilega biðjið bara um það á fésbókinni, kommentakerfinu hérna (klikkið á “comments” undir færslunni) eða á gamaldags háttinn (via símann) .. ef þið viljið halda áfram að lesa bloggið það er að segja.

Bömmer-knús á línuna!

P.s. Mér þætti alveg ofsalega vænt um það ef þið sem fáið svo þetta ofur-dýrmæta (haha) leyniorð; mynduð ekki láta neinn annan hafa það án minnar vitundar … það hefur því miður gerst og mér finnst það ofsalega óþægilegt og leiðinlegt og vil því biðja ykkur um að virða það að leyniorðið er þarna af ástæðu. ;)

Emilíana Torrini – Birds

Elska þetta lag. Elska hana.

Protected: Anna mín …

This post is password protected. To view it please enter your password below:


September 1, 2010

Protected: Heiðingjar í síðsumarssólinni

This post is password protected. To view it please enter your password below:


Góðan daginn-dagurinn

Hahaha æi, hann er ágætur greyið.

August 25, 2010

Protected: Sunddrottningin í Kotinu

This post is password protected. To view it please enter your password below:


August 24, 2010

Myndir, myndir, myndir!

Ég er LOKSINS búin að setja inn myndir frá Gæsavatnaferðinni okkar! Það tók mig svona langan tíma því að:

1) ég hef ekki haft tíma (haha en samt í alvöru)

2) ég var í myndaalbúms-veseni

En nú gaf ég mér hátt í 9 tíma (já, án gríns) við að sortera hvaða myndir af þessum 2.330 ættu að fara á netið og búa til nýja síðu fyrir Kotsmyndirnar. Eins mikið og ég elska Flickr; þá elska ég bara ekki að geta ekki læst því …

Svo ákvað ég bara að vera ofsalega sniðug og opnaði bara nýja fésbókarsíðu undir myndaalbúmið … þannig er það harðlæst, kostar ekki krónu, auðvelt í viðmóti og að skoða og allir kátir og hamingjusamir! Ekki satt? Satt! Látið mig vita ef þið viljið verða “vinur” myndasíðunnar okkar … hahahaha

(ég ER fyndin!)

:*

August 23, 2010

“Úúú you touched my ta la laaa, my ding ding dong ..”

Þetta er bara einum of fyndið, algjört möst see! Og hafa hljóðið á – tónlistin fullkomnar þetta algjörlega. Takið sérstaklega eftir dúddanum sem kemur inn á 25 sekúndu … hann er priceless. Svaka flott action hjá honum og svo má ekki gleyma magadansmúvinu í endann … ;)

(Ég myndi samt ekkert endilega horfa á þetta í vinnunni ef ég væri þið):

talala

(klikkið á “talala” fyrir ykkur sem eruð ekki vön linkum ;))